Ó Ísland, rís upp og fagna þinni himnesku köllun - spádómur Rutherfords

creation-of-adam-sistine-chapelAdam Rutherford var enskur Egyptalandsfræðingur og fornleifafræðingur sem setti fram spádóm um Ísland og Islendinga. Ísland gegnir einstöku hlutverki meðal þjóða heimsins. Á Íslandi eru afkomendur Benjamíns en Benjamín var sá sem bar ljósið. Guð faðir á himni hefur valið Ísland til að gegna algjörlega sérstöku hlutverki meðal þjóðanna. Þetta gerir Guð vegna þess að eins og Rutherford bendir á:

1. Það er enginn her á Íslandi og Íslendingar hafa aldrei barist gegn öðrum þjóðum né lagt lönd annarra undir sig. Íslenskir stjórnmálamenn og forsetar hafa reynt að miðla málum. Íslendingar hafa verið friðflytjendur meðal þjóðanna og sælir eru friðflytjendur því þeir munu Guðs börn kallaðir verða.

2, Íslendingar eru ein bókelskasta þjóð veraldar. Fleiri bækur eru hvergi á hvern íbúa og ólæsi er óþekkt.

3. Á Íslandi er lítil sem engin stéttaskipting og allir tala sama tungumálið.

4. Íslendingar elska bókmenntir og sagnfræði. 

5. Flestir Íslendingar eru í Þjóðkirkjunni sem er bæði falleg, sönn og umburðarlynd kirkja. Líf fólksins á Íslandi er svo nátengt íslensku kirkjunni að um allar aldir hefur fólk lifað og elskað sína kirkju og sinn Guð.

4-cemetery-angel-man

Íslendingar eru mjög umburðarlyndir. Þeir elska réttlæti og frið. Einnig eru mannréttindi á Íslandi með því allra besta sem þekkist. Bæði Kristur og Daníel sögðu okkur að mannkynið myndi lenda í miklum hremmingum á síðustu tímum. Þegar hremmingarnar birtast heiminum mun aðeins eitt land standa upp úr myrkrinu og lýsa sem ljós. Það land er Ísland. Lesa má um þetta í Mattheusarguðspjalli 24 og í Daníelsbók 12:1. 

Allar hinar óréttlátu stofnanir heimsins sem eru ekki Guði þóknanlegar munu falla. (Zephanias 3 og Jóhannesarguðspjall 5). Þetta tímabil myrkursins sem við erum um það bil að fara að lifa í gegnum, mun leiða til góðs og til hinnar gullnu aldar sem Drottinn sjálfur hefur lofað okkur. Gullöld ríkisins sem um hefur verið spáð mun renna upp eins og spáð hefur verið um á  mörgum stöðum í Biblíunni. Í spádómsbók Jesaja segir:

Þeir hefja upp raust sína
og fagna yfir hátign Drottins,
úr vestri [ hrópa þeir hástöfum:


15„Heiðrið Drottin í austri, [
nafni Drottins, Guðs Ísraels, á fjarlægum eyjum á hafinu.“


16Frá ystu mörkum landsins heyrum vér söngva:
„Dýrð hinum réttláta.“

Það eru Íslendingar sem munu syngja Drottni dýrð meðan hörmungarnar ganga yfir. Þeir eru þjóðin í vestri. 

Guð hefur verið að undirbúa Íslendinga til að gegna því leiðtogahlutverki sem þeir eiga að gegna meðal þjóðanna. Tíminn er kominn.

Myrkur mun koma yfir þjóðir heims en Ísland mun lýsa sem stjarna í myrkrinu. Með frelsun Íslands mun Guð almáttugur sýna heiminum sína miklu ást og umhyggju fyrir hinni varnarlausu, íslensku þjóð sem tilbiður sinn Drottinn í einlægni og sannleika. 

Íslendingar eiga að undirbúa sig undir hlutverk sitt og láta af þeim hlutum sem eru Drottni ekki þóknanlegir. 

Ísland mun leiða þá sem lifa af endalokin til nýs og betra lífs sem lifað verður samkvæmt kristnum gildum sem Kristur sjálfur mun útskýra.

Þá munu þjóðir heims eyða vopnum sínum og breyta sverði í plóg. Mannkynið mun ei framar heyja stríð.

Ísland er nú þegar orðið land og þjóð friðarins.

 

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, miðill.

 

 

 

 


Vatnsaflið er tímaskekkja - við eigum að fara strax í vindmyllurnar

Hvammsvirkjun er tímaskekkja og algjörlega óþörf framkvæmd. Tími stórra vatnsaflsvirkjana er einfaldlega liðinn. Í staðinn eiga og munu koma vindmyllubúgarðar. Ég veit ekki betur en milljón skrilljón vindmyllubúgarða séu á teikniborðinu hér á Íslandi? Hvað  þurfum við eiginlega mikla orku? Endalausa orku? Eða er virkjanaiðnaðurinn ennþá svo gamaldags að hann ráði ekki við neitt annað en vatnsafslvirkjanir? Eru verkfræðingarnir okkar of latir til að læra nýja tækni?

Það land sem fer undir uppistöðulón Hvammsvirkjunar kemur aldrei aftur til baka. Það verður aldrei hægt að endurheimta það.

Ef okkur vantar svona mikið orku, eigum við frekar að fara strax í vindmyllurnar, eða slíta samningum við álverin og loka þeim því ál er algjörlega ónauðsynlegur málmur sem hefur gríðarlega umhverfiseyðileggingu í för með sér og hann á ekki að framleiða á Jörðinni yfirhöfuð. Samfélög manna þurfa ekki ál? Til hvers erum við að nota ál? Aðallega að framleiða kókdósir handa Bandaríkjamönnum sem kunna ekki að henda þeim í endurvinnslu. OG svo er líka mikið af áli notað til að framleiða vopn og drápstól í hernaði.

En ef þið viljið ekki loka álverum, þá spyr ég bara. Hvað gætum við sparað margar virkjanir með því að spara raforku? Íslendingar eru með kveikt á öllum ljósum í öllum herbergjum alla daga og ef það er of heitt í húsunum, þá opna þeir glugga í stað þess að lækka á ofnunum. Aldrei er talað um rafmagnssparnað á Íslandi og Landsvirkjun er akkúrat ekkert að gera til að fræða almenning um það hvernig hægt sé að spara rafmagn þannig að ekki þurfi að fara í Hvammsvirkjun?

Og grundvallarforsenda Hvammsvirkjunar stenst hreinlega ekki. Íslenskt samfélag vantar ekki þessa virkjun, því þessa orku er hægt að fá frá vindmyllum og það næstum strax. Það væri nær að hraða byggingu nokkurra vindmyllubúgarða úr því að við ætlum hvort eð er að byggja þá? Hvað vantar íslenskt samfélag eiginlega mikla orku? Hvað þurfum við mikinn iðnað til að lifa hér góðu lífi? Við erum ekki nema 370.000 manns? Þurfum við virkilega bæði endalausa ferðaþjónustu, 2,5 milljónir ferðamanna á ári og einnig allar þessar virkjanir og ætlum við virkilega að eyðileggja hér allt.

Ef það vantar orku fyrir rafmagnsbíla, lokið þá álverinu á Reyðarfirði og takið Kárahnjúkavirkjun í það. Það er búið að byggja hana. Og þegar olían klárast í heiminum, þá duga rafhlöðurnar í öllum rafmagnsbílunum hvort eð er bara í 15 ár áður en þær eyðileggjast og það eru ekki til nægir málmar í jarðskorpu Jarðar til að framleiða rafmagnsbíla fyrir alla í framtíðinni, þannig að þegar olían klárast þá verður hægt að keyra bíla í að hámarki 15 - 30 ár eftir það og síðan munu bílar detta alveg út. Til hvers þurfum við þá allar þessar virkjanir?

Íslendingar munu aldrei bjarga loftslagi jarðarinnar. Það er ekki okkar hlutverk. Við erum 370.000 manns og ef Kínverjar, Rússar, Bandaríkjamenn og Indverjar ákveða ekki að bjarga loftslaginu og hætta að keyra bíla eða nota olíu, þá mun það ekki skipta neinu fokking máli hvað við gerum hér á Íslandi.

Og rafmagnsbílar eiga ekki eftir að redda neinu. Það verður aldrei hægt að framleiða nóg af þeim. Ef olían klárast munu rafmagnsbílar endast í nokkra áratugi en ekki lengur. Metan og vetni væru betri valkostir. Metan fáum við úr gömlum sorphaugum eins og Álfsnesi og Vetni gætum við framleitt nóg með Kárahnjúkavirkjun.

Þannig að til hvers vantar okkur Hvamnmsvirkjun? Til þess að menn geti keyrt Teslur og þóst vera umhverfisvænir framtíðarsinnar þegar þeir eru bara asnar sem eru að láta hafa sig að fíflum.

Fíflin leynast nefnilega víða og láta segja sér hvað sem er. Það er ekkert í orkubúskap Íslands sem raunverulega kallar á Hvammsvirkjun.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, M.Sc. M.A.


Táknmál æðstu prestanna í Atlantis

AtlantisMannkynið í Atlantis notaði ekki tungumál. Munnurinn var einungis notaður til að syngja. Menn Atlantis hugsuðu í myndum en ekki í orðum og sendu myndskilaboð telepatískt á milli sín. Eina "tungumálið" sem notað var, var táknmál sem einungis innvígðir æðstu prestar Atlantis gátu notað. Það var hieroglyfur en var allt saman byggt á táknmyndum en ekki hljóðum eða stöfum. Það var því frábrugðið hieroglyfi Forn-Egyptalands.

Æðstu prestarnir í Atlantis sem kallaðir voru Altar sungu í Póseidon hofinu þar sem túrkísblái kristallinn var geymdur. Atlantis sökk í sæ fyrir 12700 árum. Það var meginland sem lá eftir öllum Mið-Atlantshafshryggnum og það var eina meginlandið sem var gert úr basalti eins og Ísland. Jarðfræðilega séð er Ísland leifarnar af Atlantis. Ísland er eini hluti Atlantis meginlandsins sem enn er ofansjávar.

 

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, M.Sc. M.A. leiðbeinandi miðill.


Augu Ra og Horusar

YHWH
 
Með auga Sólarinnar RA sjáum við það sem er sýnilegt í sólarljósi. Við sáum þá hluti sem hægt er að mæla með mælitækjum. Hinn efnislega heim. Við sjáum yfirborðið. Við sjáum fólk eins og það lítur út að utan.
 
Með auga Horusar sem Toth endurgerði sjáum við hins vegar hinn innri heim. Við sjáum með innsæinu það sem er hulið dauðlegum mönnum eins og John Milton sagði í Paradísarmissi.
 
 
 
 
Með auga Horusar / Toth sjáum við sálina í fólki og ef við beitum auga Horusar á raunheiminn opnast okkur allir leyndardómar alheimsins. Ef Guð gefur okkuð lykil lífsins - Ankhið þá megum við vita allt.
 
Ankh
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
 
Yin og Yang er tákn fyrir þessi augu. Hringurinn Yin og Yang táknar augað og svarta augað er auga TOTH og hvíta augað er auga RA.
 
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, M.A. M.Sc. fræðandi miðill.egyptian-eye-of-horus-ankh-egypt-archaeologist-gold-noirty-designs

Hulurnar sjö yfir innsæinu og mikilvægi þess að opna auga Horusar

156-16-1-25-15-42-55mÉg er komin í gegnum hulurnar sjö (the seven illusions) sem liggja yfir innsæinu. Ég hafði enga hugmynd um að ég væri að fara í gegnum þær en það eru nokkur ár komin síðan að ég ákvað markvisst að þjálfa innsæið og opna þriðja augað og auga Horusar. Það hefur semsagt tekist. Ef ég þarf að sjá eitthvað í huganum er mér sýnt það. Annars þá lýsir þetta innsæi sér í því að fá að vita ótrúlegustu hluti og í því að vita helling án þess að maður viti almennilega hvernig maður beinlínis veit það.
 
Með augunum höfum við einungis sýn til þeirra hluta sem eru tímabundnir og forgengilegir, en með auga Horusar og innsæinu sjáum við þá hluti sem eru eilífir, eins og Guð, Engla, Sannleikann, Sögulegar staðreyndir sem hafa þegar gerst og svo framvegis.
Ég hvet sem flesta til að opna þriðja augað sitt og hefja þessa vegferð sem ég hef sjálf verið á. Þetta er valkostur fyrir ykkur alveg eins og þetta var valkostur fyrir mig.
 
Þið getið ekki ímyndað ykkur hvað líf mitt hefur breyst og hvað það er um það bil að fara að breytast.
 
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir.

Svartnætti Landnámu, saga skrifuð af sigurvegurum og það sem ekki má segja

LandnamaEngin bók hefur nokkurn tímann verið til jafn mikillar óþurftar á íslenskri tungu og Landnáma. Íslendingar eru enn fastir í Landnámu eins og hún sé Guðs sannleikur og komast bara ekki upp úr Landnámufarinu þótt hún sé lygi að því leyti að hún þegir um mjög mikilvæga hluti og segir ekki nema brot af sannleikanum. Landnámabók segir í raun ósatt með því að segja aðeins sumt og annað ekki.

Ennþá er það þannig meðal Íslendinga að ef einhver vill láta taka mark á sér og vera maður með mönnum eða kannski öllu heldur fræðimaður með fræðimönnum þá verður hann að styðjast við Landnámu og nota hana sem sína aðalheimild.

En Landnáma er einungis heimild um sumt og annað ekki. Hún er einungis heimild um landnám vissra ætta og vissra Norðmanna á Íslandi. Sem sagnfræðingur myndi ég flokka hana með Wikipediu og Mogganum sem þriðja flokks heimild og varla marktækt plagg.

Einungis með því að leggja Landnámu til hliðar getum við farið að nálgast sannleikann um landnám Íslands og þá staðreynd að 2500 - 3000 manns voru myrt hér á landi árið 874 og þar á eftir þegar norrænir menn komu hingað og numu lönd sem þegar voru numin öðru fólki.

Þeir sem drepnir voru voru keltnesk kristnir menn og voru þeir flestir á vesturhluta landsins, á Kjalarnesi, Akranesi, við Hvalfjörð og við Breiðafjörð og í Dölum. Þeir litu á sig sem þegna afkomenda Njáls með níu gísla Hákonungsins af Írlandi.

Fyrst um 600 komu keltnesk kristnir menn að landi við Strandakirkju og þar stofnsettu þeir klaustur og byggðu fyrstu kirkjuna á Íslandi. Þessu segir Landnáma ekki frá. Samkvæmt Landnámu var það Örlygur sem kom frá Suðureyjum sem byggði fyrstu kirkjuna en það er ósatt. 

Landnámabók er skrifuð til þess beinlínis að fela þjóðarmorð keltnesk kristinna manna á Íslandi við upphaf landnáms norskra víkinga og til að staðfesta og lögfesta eignarhald norrænna manna yfir jörðum og landnámi á landinu sem hafði verið áður í eigu annarra.

Þetta er semsagt enginn yndislegur eða góður tilgangur, heldur hrein illmenska og dólgsháttur. Sigurvegararnir í styrjöldum eru nefnilega þeir sem skrifa söguna og er Landnámabók gott dæmi um það.

Og finnst engum skrýtið að einu keltnesk kristnu landnámsmennirnir sem fá að vera í friði og nema land skv. Landnámu eru allir afkomendur eða ættmenn Ketils flatnefs og tilheyra sömu ætt? Er mögulegt að ætt þessi eða Ketill flatnefur hafi samið við norska víkinga og getur verið að hann hafi svikið þessa Kelta sem bjuggu á Íslandi í hendur norrænna manna og fengið landnámsjarðir fyrir sig og afkomendur sína og ættmenni í staðinn? Hefur aldrei neinum dottið það í hug? Auður djúpúðga var gift Konungi Dyflinnar, Ólafi og Dyflinnarkonungar voru ætíð að seilast til valda og berjast á móti keltnesku Hákonungunum. Getur verið að þessi átök milli Hákonunga Írlands og Dyflinnarkonunga hafi teygt sig alla leiðina til Íslands? Kjarval konungur er í þessu samhengi líka konungur Dublin og tengdur Leinster og þótt Hákonungur Írlands hafi verið giftur systur hans, virðist sem Kjarval hafi verið blendinn í trúmennsku sinni gagnvart Hákonungnum og var ekki alltaf reiðubúinn til að hlýða valdi Hákonungs og var jafnvel í slagtogi með norrænum víkingum. Í orrustunni við Clontarf eru það einmitt þessi öfl, Dyflinarkonungur, Leinsterkonungur og norrænir víkingar í samstarfi með Orkneyjarjarli sem er afkomandi Kjarvals sem drepa írska Hákonunginn Brian Boru. 

Því á Íslandi var meira að segja írsk-íslensk keltnesk kristin drottning sem hét Nielléne og var hún meðal þess fólks sem dó hér 874. Nielléne var afkomandi Njáls með níu gísla sem var Hákonungur Írlands og keltnesk kristinn konungur. Afkomendur hans voru oft kallaðir Niellenar. Nielléne drottning sá fram á örlög sem hún taldi verri en dauðann. Hún sá fram á að verða gefin norskum víkingahöfðingja sem eiginkona eða ambátt. Hún valdi dauðann frekar og gekk í sjóinn í Hvammsfjörð.

Hvernig veit ég þetta? Ég veit þetta af því að ég er miðill og þessi þekking kemur til mín frá Handanheiminum. Ég geri ekki ráð fyrir því að mér verði trúað. Íslendingar hafa alltaf verið fastir í svartnætti Landnámu og talið hana öðrum bókum fremri.

Írska-íslenska drottningin Nielléne átti heima á Valþúfu við Hvammsfjörð skammt frá Hvammi í Dölum. Keltnesk kristnir menn voru mjög sterkir við Breiðafjörð og Hvammsfjörð, á Akranesi og öllu Vesturlandi. Ég fæ að þeir hafi verið 2500 - 3000 talsins, líklega um 2800 manns. Nánast allt þetta fólk var myrt. Börn og einstaka fræðimenn voru teknir og látnir starfa fyrir víkinga. Það gerðist líka annað sem er mjög athyglisvert. Samkvæmt nýjustu rannsóknum eru 63% af erfðaefni Íslendinga af keltneskum uppruna, kven meginn. Líklegt er að norrænir víkingar hafi valið fegurstu stúlkurnar úr þessum 2800 manna hópi keltneskra manna sem voru fyrir á Íslandi og gert þær að eiginkonum sínum eða ambáttum. Keltneskar formæður okkar komu því ekki allar frá Bretlandi eða Suðureyjum. Þær voru hér á Íslandi þegar víkingarnir komu.

Njálssaga er full samviskubits vegna þessa þjóðarmorðs á keltnesk kristnum mönnum og Njáll á Bergþórshvoli er írski Hákonungurinn sem er svikinn af Dyflinnarkonungum og ætt Ketils flatnefs. Njálsbrenna er konungsbrenna og endalok Hákonungdæmis Írlands.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, fræðandi miðill.


Endalok tímatals Mayanna - síðustu tímar og hvað það merkir að vera skírður með eldi

End timesÁrið 2012 héldu margir að Heimsendir væri að skella á vegna þess að tímatal Mayanna endar árið 2012. En árið 2012 lauk tímabili Jóhannesar skírara þegar skírt er með vatni og tímabil Eldsins hófst, svokallaðir síðustu tímar, tímabil Krists sjálfs, þegar skírt er með eldi. Mayarnir vissu að tímabil Guðs myndi taka við eftir árið 2012 og þorðu einfaldlega ekki að fara lengra.Þessvegna endar tímabil þeirra árið 2012. Þeir töldu sig ekki umborna að fjalla um tímabil Guðs.

Það eru semsagt komnir síðustu tímar. Vottar Jehova og aðrir sem tala um Heimsenda geta glaðst eða hvað? Endalok olíualdar hljóta að vera framundan, enda jarðfræðilega og vísindalega þekkt að olía Jarðar er eðlisfræðilega takmörkuð stærð sem hlýtur að klárast. Það er eins gott að flýta sér inn í orkuskiptin og ljúka þeim af sem fyrst.

Að skírast með eldi gerist þannig að þú ferð í gegnum geisla af mismunandi lit. Fjólubláum, gylltum, fagurbláum og smaragðsgrænum litum auk hvíts litar. Þetta er ekki hægt að framkvæma í þessum heimi. Þetta gerist á andlega planinu. Það er ekki hægt að stytta sér leið inn í Himnaríki og það er ekki hægt að kaupa sér aðgang. Uppstignun eða það sem á ensku kallast "Ascension" verður ekki keypt. 

Um 8 milljarðar manna eru núna í heiminum. Ef við ímyndum okkur hverja manneskju sem ljósaperu og sjáum allt mannkyn sem 8 milljarða ljósapera, þá er að kvikna á einni og einni peru út um allan heim. Fólk kviknar innan í sér. Ríki Guðs er innra með mönnunum sjálfum. Ríki Guðs samanstendur af því fólki sem fær Andann yfir sig og kviknar að innan. Ríki Guðs er dreift um alla Jörð, því út um allan heim er fólk að vakna.

Allir menn á Jörðinni í dag standa frammi fyrir vali. Annað hvort að fara með því gamla. Velja tímabil vatnsins og tímabil Jóhannesar skírara sem var fyrir árið 2012 og velja að fara með því tímabili og vera þar, eða að þora að fara með Kristi inn í framtíðina og tímabil eldsins. Það eru færri sem velja það. En við erum öll að velja, meðvitað eða ómeðvitað. Undirmeðvitund okkar framkvæmir valið ef við veljum ekki meðvitað.

Í Handanheiminum fara sálir þangað sem þroskastig þeirra leyfir. Peningamenn lenda með peningamönnum, sjálfstæðismenn með sjálfstæðismönnum, tónlistarunnendur með tónlistarunnendum og svo framvegis. Allir fara í raun á þann stað þar sem þeim líður best og þar sem þeim finnst lífið vera eins og það eigi að vera.

Hér á Jörðinni er allt blandað. Við öll saman í einni kös, en í Handanheiminum er allt sorterað. Helvíti er til en það eru mjög fáir sem fara þangað. Flestar vistarverur Handanheimsins eru miklu skárri. Flestra bíður gott og vel bærilegt framhaldslíf. Kærleikur Guðs föður er mikill og umhyggjan fyrir okkur syndugum mönnum endalaus. 

Guð faðir mun aldrei leyfa mannkyninu að eyðileggja jörðina og Kristur mun aldrei yfirgefa þá sem tilheyra hans ríki. Við megum búast við meira inngripi frá Handanheiminum.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir

 


Kapellan í Öxney - eitt elsta hús á Íslandi, keltnesk örnefni og heilög fjöll

egyptian-eye-of-horus-ankh-egypt-archaeologist-gold-noirty-designsÍ Öxney á Breiðafirði er eitt elsta hús á Íslandi samkvæmt skrám Þjóðminjasafns, gömul kapella sem er byggð á enn eldri grunni sennilega tengdum keltneskri kristni. Í Bjarnarhöfn við Breiðafjörð bjó landnámsmaðurinn Björn austræni sem lét grafa sig í flæðarmálinu sem bendir til keltneskrar kristni. Ef við gerum ráð fyrir að bænarstaður Björns austræna hafi verið þar sem kirkjan í Bjarnarhöfn stendur núna, þá liggur bein lína frá Bjarnarhafnarkirkju í gegnum hið heilaga Fjall Helgafell og yfir í Krosshólaborgina, sem var bænastaður Auðar Djúpúðgu, sem var systir Björns austræna og keltnesk kristin eins og hann. Hafi hún tendrað eld uppi á Helgafelli hefur bálið sést frá Bjarnarhöfn og öfugt.

Skammt frá Bjarnarhöfn er Purkey sem er Pork island eða Svínaeyjan. Þar hafa verið geymd svín á landnámsöld. Írafell og Pekronsdalur eru skammt undan, en Pekron er gömul írsk mælieining fyrir korn sem bendir til kornræktar þegar loftslag var hlýrra á landnámsöld. Heitið Öxney vísar einnig sennilega til Ax sem vísar til kornræktar, eða til uxa. 

Bæjarnafnið Saurar vísar ekki til mýrlendis í norsku, heldur til hins gelíska nafns saor eða saoir sem notað var um smið og þýðir staður þar sem smiður býr eða þar sem er smiðja til staðar. 

Bjarnarhöfn er í raun upphafshvoll, staður sem er helgaður hinni nýju sól sem birtist á nýju ári, vegna þess að á Nýársdag birtist sólin yfir Kerlingarskarðsfjallgarðinum og skín yfir Bjarnarhöfn eftir um tveggja vikna svartamyrkur vetrar. Einar Pálsson hefði því kallað Bjarnarhöfn upphafshvol eins og hann gerir við Bergþórshvol á Suðurlandi. Þetta er staður ljóssins, endurfæðingar, jólanna því Freyr og Kristur renna saman í eitt og uppskeran er tryggð með komu sólarinnar á nýju ári. Enda er kirkjan í Bjarnarhöfn helguð Heilögum Nikulási í dag, sem er jú jólasveinninn sjálfur og táknmynd fæðingar Krists.

Kristur er einnig Auga Ra. Hann er Sólin og ljósið sem kemur inn í myrkrið. Hann er auga Ra sem sér allt sem er sýnilegt í sólarjósi, mælir og skilgreinir, hin mennska greind - tákn raunvísindanna.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, M.A.


Mikael erkiengill - herforingi Krists og sá sem sigraði drekann

angel+warriorMikael erkiengill er sterkastur allra engla. Hann stendur næst Kristi konungi sjálfum og hann sigraði drekann sem kunnugt er. Litur Mikaels er fagurblár og stundum þegar hann vill vera töffari sendir hann lögreglubíla með bláum blikkandi ljósum á undan sér, áður en hann birtist. Að vissu leyti er hann lögreglustjóri Alheimanna.

Mikael erkiengill er semsagt af bláa geislanum og hann hefur mjög sterka réttlætiskennd. Hann þolir ekki hið illa og hefur nákvæmlega ekkert umburðarlyndi gagnvart því. Hann er mjög réttsýnn, sanngjarn og kærleiksríkur sérstaklega gagnvart þeim sem eru varnarlausir og minna mega sín. Hann er með fallega sál og hjarta hans er fullt af kærleika.

Það er gott að kalla á Mikael þegar maður þarf vernd. Mikael getur alltaf sveipað mann bláum hjúp sínum og hann er mjög snöggur og fljótur að framkvæma hlutina. Hann þolir enga vitleysu og það borgar sig að hugsa vel áður en maður biður hann um eitthvað, af því að hann framkvæmir það strax. Traustari vin og félaga er ekki hægt að hugsa sér.

7496-istockgetty-images-plusshaunjeffersMikael er hershöfðingi Guðs. Hann er yfirmaður hersveita Englanna. Undir hans stjórn eru milljónir Engla.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, fræðandi miðill

 


Dulmagn jarðar við Strandakirkju og fyrsta klaustur Papa á Íslandi

strandakirkjaVið Strandakirkju er magnaður staður. Þeger ég sem miðill fer þangað, tek ég yfirleitt af mér skóna og geng berfætt eftir stéttunum þar. Þá finn ég stundum svo magnaða orku streyma frá jörðinni að það liggur við að ég falli í yfirlið. Við Strandakirkju hef ég einnig hitt einn af englum Krists.

En hvaðan kemur þetta dulmagn og þessi óútskýrði kraftur? Gegnum miðilshæfileika mína skynja ég að Strandakirkja er sá staður þar sem keltnesk kristnir menn komu fyrstir að landi um árið 600. Þeir byggðu fyrstu kirkjuna á þessum stað sem er undir Strandakirkju og þarna var klaustur með 12 munkum. 

Hins vegar árið 874 komu norrænir víkingar og drápu þessa munka og gjöreyddu þessu klaustri. Blóð munkanna hrópar frá jörðu og krafturinn sem er við Strandakirkju kemur að hluta til frá klaustrinu og hinni fornu keltnesku kristni. Munkarnir krefjast réttlætis og þeir vilja að sín sé minnst.

Þar sem kirkjan sem stendur í dag er byggð á hinni fornu kirkju, er krafturinn í veggjum hennar. Þeir sem vilja fá lækningu Krists við Strandakirkju geta gengið berfættir upp að kirkjuvegg og með því að setja aðra höndina á kirkjuvegginn að utan má finna þennan magnaða kraft sem þarna er.Það þarf ekki einu sinni að fara inn í kirkjuna.

Það er mín skoðun sem miðils, að við Strandakirkju sé alltaf einn af Englum Krists á vakt. Sá engill hlustar á allar bænir um lækningu sem fólk biður við kirkjuna, sinnir þeim og kemur þeim til skila.

Við Strandakirkju stóð semsagt fyrsta klaustur Papa á Íslandi og það er helgasti staður Íslands. Ég er svo heppin að búa á Selfossi og ég er um hálftíma að keyra þangað. Leitið og þér munuð finna. Knýjið á og fyrir yður mun upplokið verða.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, B.A., B.Sc. M.A. M.Sc., fræðandi miðill.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband