Hvað eru pýramídarnir þrír í Giza gamlir og til hvers voru þeir notaðir?

The pyramidsPýramídarnir í Egyptalandi við Giza eru mun eldri en mannkynið hefur áttað sig á. Þeir eru einu mannvirkin sem eru eftir af menningu Atlantis. Í Atlantis var mannakorn notað sem eldsneyti til að knýja sáttmálsarkir sem framleiddu rafmagn. Arkirnar voru settar inn í miðherbergið sem kallast konungsherbergið í pýramídanum. Sáttmálsörkin var sett ofan í steinkistuna sem er í konungsherberginu.

Pýramíðinn sjálfur var hulinn kristalsplötum úr hvítum kvars og efst á pýramídanum var gull og pýramídi úr kristal sem var eins og loftnet sem sendi frá sér þráðlaust rafmagn um alla jörð. Þetta er tækni sem við þekkjum ekki í dag. Undir pýramídanum var vatn sem skapaði jarðtengingu fyrir rafmagnið.

Pýramídarnir þrír í Giza voru semsagt gerðir til að framleiða rafmagn. 

 

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, miðill.


Ný öld er upp runnin

271846542_10223887342165087_8910599636176248632_nNý öld er að renna upp. Tímabili vatnsins er lokið og tímabil eldsins er að taka við. Við væntum komu Krists á hverri stundu. Það er því kominn tími til að vakna af svefni og snúa sér til frelsarans.

Allir menn á j0rðinni eru kallaðir til þess að taka þátt í þeirri gleði og því ævintýri sem er að renna upp. Það sem stendur í Biblíunni um endurkomu Krists er sannleikur. Kristur mun koma.

Það er því ekki seinna vænna að fara að gera sér grein fyrir því að Guð er raunverulega til.

Heimurinn mun versna áður en hann batnar og um stund mun flestum mönnum á jörðinni líða eins og heimsendir sé kominn. En nei, þetta er ekki heimsendir heldur nýtt upphaf með Kristi, konungi heims.

Við erum öll kölluð til þess að vera með í framtíðinni.

Amen.

 

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, miðill. 


Mikilvægi fyrirgefningarinnar

forgivenessAllir menn þekkja þjáningu heimsins og flest höfum við fundið hana á eigin skinni. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt sagði skáldið Einar Benediktsson. Það er mikilvægt að geyma ekki harm sinn í hljóði, heldur tjá líðan sína og ganga í gegnum hið svokallaða sorgarferli. 

Það er eðlilegt að vera í afneitun eftir erfið áföll. En sorgarferlið heldur áfram og að lokum eigum við að geta náð sátt. 

Við eigum aldrei að samþykkja hið illa. Ill hegðun er ill og við erum ekki beðin um að fyrirgefa hana, heldur erum við beðin um að fyrirgefa okkur sjálfum fyrir að hafa dæmt okkur sjálf. Sá sem verður fyrir ofbeldi dæmir oft sjálfan sig sem sökudólg og telur ofbeldið vera sér að kenna. Þolandi hugsar t.d. ef ég hefði klætt mig öðruvísi, þá hefði mér ekki verið nauðgað. Eða þá að einhver hugsar: Eiginmaður minn myndi ekki lemja mig svona nema vegna þess að ég á það skilið.

Við verðum því að fyrirgefa okkur sjálfum. Það er mjög mikilvægt. Með því að ná fram slíkri fyrirgefningu gagnvart okkur sjálfum rjúfum við vítahring ofbeldis og vinnum að friði á jörðinni. 

Það er einnig mjög mikilvægt að við kennum þetta börnum og unglingum til þess að þau fyrirgefi sjálfum sér og lokist ekki inni í eigin sársauka ef eitthvað kemur fyrir. Samvera foreldra og unglinga er einnig lykilatriði. Unglingar vilja þekkja foreldra sína og vilja kynnast foreldrum sínum upp á nýtt sem fullorðnir einstaklingar.

Djúp sár geta ekki gróið án fyrirgefningar. Við skulum því læra að fyrirgefa hvort öðru.

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir


Bloggfærslur 1. maí 2023

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband