8.4.2023 | 08:39
Mikael erkiengill - herforingi Krists og sá sem sigraði drekann
Mikael erkiengill er sterkastur allra engla. Hann stendur næst Kristi konungi sjálfum og hann sigraði drekann sem kunnugt er. Litur Mikaels er fagurblár og stundum þegar hann vill vera töffari sendir hann lögreglubíla með bláum blikkandi ljósum á undan sér, áður en hann birtist. Að vissu leyti er hann lögreglustjóri Alheimanna.
Mikael erkiengill er semsagt af bláa geislanum og hann hefur mjög sterka réttlætiskennd. Hann þolir ekki hið illa og hefur nákvæmlega ekkert umburðarlyndi gagnvart því. Hann er mjög réttsýnn, sanngjarn og kærleiksríkur sérstaklega gagnvart þeim sem eru varnarlausir og minna mega sín. Hann er með fallega sál og hjarta hans er fullt af kærleika.
Það er gott að kalla á Mikael þegar maður þarf vernd. Mikael getur alltaf sveipað mann bláum hjúp sínum og hann er mjög snöggur og fljótur að framkvæma hlutina. Hann þolir enga vitleysu og það borgar sig að hugsa vel áður en maður biður hann um eitthvað, af því að hann framkvæmir það strax. Traustari vin og félaga er ekki hægt að hugsa sér.
Mikael er hershöfðingi Guðs. Hann er yfirmaður hersveita Englanna. Undir hans stjórn eru milljónir Engla.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, fræðandi miðill
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.4.2023 | 07:57
Dulmagn jarðar við Strandakirkju og fyrsta klaustur Papa á Íslandi
Við Strandakirkju er magnaður staður. Þeger ég sem miðill fer þangað, tek ég yfirleitt af mér skóna og geng berfætt eftir stéttunum þar. Þá finn ég stundum svo magnaða orku streyma frá jörðinni að það liggur við að ég falli í yfirlið. Við Strandakirkju hef ég einnig hitt einn af englum Krists.
En hvaðan kemur þetta dulmagn og þessi óútskýrði kraftur? Gegnum miðilshæfileika mína skynja ég að Strandakirkja er sá staður þar sem keltnesk kristnir menn komu fyrstir að landi um árið 600. Þeir byggðu fyrstu kirkjuna á þessum stað sem er undir Strandakirkju og þarna var klaustur með 12 munkum.
Hins vegar árið 874 komu norrænir víkingar og drápu þessa munka og gjöreyddu þessu klaustri. Blóð munkanna hrópar frá jörðu og krafturinn sem er við Strandakirkju kemur að hluta til frá klaustrinu og hinni fornu keltnesku kristni. Munkarnir krefjast réttlætis og þeir vilja að sín sé minnst.
Þar sem kirkjan sem stendur í dag er byggð á hinni fornu kirkju, er krafturinn í veggjum hennar. Þeir sem vilja fá lækningu Krists við Strandakirkju geta gengið berfættir upp að kirkjuvegg og með því að setja aðra höndina á kirkjuvegginn að utan má finna þennan magnaða kraft sem þarna er.Það þarf ekki einu sinni að fara inn í kirkjuna.
Það er mín skoðun sem miðils, að við Strandakirkju sé alltaf einn af Englum Krists á vakt. Sá engill hlustar á allar bænir um lækningu sem fólk biður við kirkjuna, sinnir þeim og kemur þeim til skila.
Við Strandakirkju stóð semsagt fyrsta klaustur Papa á Íslandi og það er helgasti staður Íslands. Ég er svo heppin að búa á Selfossi og ég er um hálftíma að keyra þangað. Leitið og þér munuð finna. Knýjið á og fyrir yður mun upplokið verða.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, B.A., B.Sc. M.A. M.Sc., fræðandi miðill.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)