Norski skógarkötturinn Geir!

The image “http://www.eoe.is/Geir%20Haarde%20p%E5%20den%20R%F8de%20Plass-thumb.JPG” cannot be displayed, because it contains errors.

Geir Haarde er grautfúll.  Hann er reiður.  Hann er bálreiður út í sjálfan sig fyrir að hafa mætt á fundinn í Háskólabíói. Af hverju sat ég ekki heima, hugsar Geir. Þvílíka niðurlægingu hefur hann aldrei upplifað - að vera skammaður opinberlega af þjóðinni sjálfri.

En af hverju má ekki ganga til kosninga? Jú, vegna þess að Geir Haarde og Davíð Oddsson eru búnir að ganga til samninga við erlend ríki sem verður að standa við. Bíddu við, samninga við ERLEND RÍKI!  Er verið að selja okkur erlendum aðilum á nauðungaruppboði? Er þjóðin orðin að skiptimynt í erlendum samningum.

Og hver skyldi vera skrifaður fyrir láninu hjá Alþjóða Gjaldeyrissjóðnum?  Það er ODDSSON en ekki HAARDE.  ...Einungis ODDSSON.  Getum við ekki bara látið MR. ODDSSON borga lánið prívat og persónulega. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband