Drakúla greifi í Seðlabankanum

Dracula filmSpaugstofan var aldeilis ótrúlega frábær nú í kvöld.  Svei mér þá ef þetta var ekki besta íslenska stuttmynd sem ég hef nokkru sinni séð um Davkúla greifa í Seðlabankanum.  Það sem ég velti fyrir mér núna er hverjar verða afleiðingarnar af því að ráðast svona beint að rótum vandans.  Verður spaugstofan lögð niður?  Týnast spaugstofumenn í flugvél yfir Tröllaskaga og finnast aldrei framar ????  Hefur Davíð húmor fyrir sjálfum sér, og það mikilvægasta - hefur Davíð húmor fyrir Spaugstofunni ?????

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Hann hefur góðan húmor og hefur skemmt sér vel yfir þessum þætti. Hann var sjálfur hluti af Útvarp Matthildi sem var við líði fyrir meira en 30 árum síðan og var léttur gagnrýnandi á atburði líðandi stundar líkt og Spaugstofan er nú.

Annars sé ég mestan húmorinn í því að Davíð er nú sem Seðlabankastjóri að slást við drauga í efnahagsmálum sem urðu til í stjórnartíð hans sjálfs frá 1991, en þá hafði ríkisstjórn undir forsæti Steingríms Hermannssonar slegið niður óðaverðbólgu, komið á þjóðarsátt á vinnumarkaðnum og stöðugleika í efnahagsmálum. Þessum árangri var fórnað í einkavæðinga- og stóriðjufylleríi síðustu ára. Við súpum illilega seyðið af því í dag.

Valgeir Bjarnason, 19.4.2008 kl. 22:43

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Sammála. þeir voru dásamlegir.

Steingerður Steinarsdóttir, 20.4.2008 kl. 18:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband