Að lesa Nabokov á Selfossi

001Jæja, alltaf gott að koma heim til Selfoss og setjast niður og lesa.  Ekkert slor að lesa um Nabokov, enda áhugaverður rithöfundur og þýðandi.  Kötturinn Vampy nýtur góðs af.  (Sokkarnir eru í boði Júróprís).

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Greta Björg Úlfsdóttir

Yndisleg mynd, mikið rosalega hafið þið það notalegt!

Greta Björg Úlfsdóttir, 2.3.2008 kl. 21:52

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Einmitt svona vildi kötturinn minn hann Ólafur Ragnar hafa það. Hringa sig á lærin á mér þegar ég horfði á sjónvarpið eða las. Hann er nú farinn blessaður eftir rúmlega 11 ára samvist.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.3.2008 kl. 13:47

3 Smámynd: Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir

Þú verður að hugsa vandlega hvort að þú eigir ekki að fá þér nýjan kött !  

Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir, 3.3.2008 kl. 14:40

4 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Nei ég held ekki. Ekki strax að minnsta kosti. Ég er núna með hund. Fékk hann fyrir 4 árum. Þeim kom vel saman Ólafi og Bangsa. Ef misklíð varð réð Ólafur. Goggunarröðin var klár hvað þá varðaði.

En ég sakna Ólafs, hann var einstaklega ljúfur köttur. Hann vissi sínu viti.

Ég bjó í Húsahverfinu í Rvík í nokkur ár meðan ég átti hann. Í næsta húsi var Labrador hundur. Ólafur gerði það að leik sínum að rölta sér gegnum limgerðið og yfir á lóðina til hundsins. Stoppaði á ákveðnum stað og byrjaði að snyrta sig.

Með það sama trylltist hundurinn stökk af stað og ætlaði í köttinn, ær af illsku. Og  toom...., spottinn stoppaði hann  rúmu feti frá Ólafi. Ólafur vissi upp á hár hvað spottinn var langur.

Það skemmtilega var að, Nikulás, eigandi hundsins hafði jafngaman að þessu og ég.

Ólafur lét eins og hann hefði ekki orðið hundsins var og snyrti sig sem aldrei fyrr.

  

Axel Jóhann Hallgrímsson, 3.3.2008 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband