21.2.2008 | 17:39
Hið mannhverfa viðhorf til náttúrunnar
Mannhverfa viðhorfið til náttúrunnar gerir ráð fyrir því að náttúran eigi einungis að þjóna hagsmunum mannsins. Maðurinn er drottnari alheimsins og allir hlutir eru gerðir fyrir hann. Samkvæmt þessu á maðurinn einn rétt til lífs. Dýrin eiga engan rétt til lífs nema að því leyti sem þau þjóna hagsmunum mannsins, oftast um stundarsakir.
Ótrúlega margir virðast aðhyllast hið mannhverfa viðhorf til náttúrunnar...að hún sé fyrst og fremst auðlind fyrir mannskepnuna. Það vill hins vegar oft gleymast í hinu stóra samhengi að maðurinn lifir alls ekki án náttúrunnar og getur engan veginn lifað lengi án vatns, regns, hafs, gróðurs, rennandi vatnsfalla og dýra. Mannhverfa viðhorfið er heimskt og sjálfhverft viðhorf sem lýsir ótrúlegum hroka mannsins gagnvart öllum öðrum lifandi verum. Smám saman ætti manninum þó að skiljast að einungis í jafnvægi og sátt við náttúruna getur mannkynið öðlast hamingju og frið til lengri tíma litið.
Önnur bábilja er að maðurinn stjórni heiminum. Hvílík firra. Þegar fellibylurinn Katarina skall á New Orleans gat valdamesti maður heims, Bush bandaríkjaforseti ekki gert neitt fyrr en mesti veðurofsinn var um garð genginn. Gagnvart náttúruöflunum erum við í raun vanmáttug, varnarlaus og oft hugsunarlaus líka vegna þess að við byggjum of oft á snjóflóðasvæðum, jarðskjálftasvæðum og eldgosasvæðum án þess að hugsa um afleiðingarnar.
Athugasemdir
Góður og þarfur pistill hjá þér.
Greta Björg Úlfsdóttir, 21.2.2008 kl. 18:01
Myndin er líka rosalega flott!
Greta Björg Úlfsdóttir, 21.2.2008 kl. 18:02
Er það ekki einmitt mjög umhverfisvænt, Gunnar?
Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2008 kl. 12:32
Getur verið dýrvænt líka, ef hann hefur orðið ellidauður.
Greta Björg Úlfsdóttir, 23.2.2008 kl. 12:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.