15.2.2008 | 10:12
Hvernig er jörðin að innan?
Fæstir vita það að úthafsskorpan sem við stöndum á er aðeins um 10 km þykk, á meðan að meginlandsskorpan nær í mesta lagi 70 km þykkt. Og undir Íslandi er svokallaður möttulstrókur sem heldur landinu í raun og veru uppi fyrir ofan sjávarmál. Möttulstrókurinn færist ekki, en Ísland er hins vegar að gliðna á flekaskilum og er hreyfingin (gliðnunin) að jafnaði um 2 cm á ári.
Undir skorpunni er síðan hinn mikli möttull jarðar sem er aðallega úr peridótíti sem er ultramafísk bergtegund. Mötullinn er um 2700 km þykkur og hann er að mestu leyti á föstu formi en er þó aðeins deigur eins og mjúkt kertavax. Í möttlinum eru straumar þar sem heitt kvika berst upp en köld kvika sekkur niður. Þessir straumar eru þó mjög hægir. Í möttlinum eru möttulstrókar eins og t.d. undir Íslandi og Hawaii. Þeir staðir kallast heitir reitir. Á heitum reitum er mikil eldvirkni, hitastigull hár og jarðskjálftar og eldsumbrot tíðari en annarsstaðar.
Neðan við möttulinn er ytri kjarni jarðar. Hann er úr fljótandi járnblöndu og í honum eru straumar sem skapa segulsvið jarðar. Innsti kjarninn aftur á móti er undir svo miklum þrýstingi að atómin geta ekki hreyft sig heldur eru með þéttustu pökkun og er innsti kjarninn því algjörlega úr föstu samanþjöppuðu efni.
Radíus jarðar er einungis um 6371 km og ummál hennar við miðbaug um 40.000 km. Jarðskorpan er einungis þunn himna sem við stöndum á og andrúmsloftið er einnig þunnt miðað við radíusinn og hinn mikla geim sem tekur við þegar andrúmsloftinu sleppir. En nóg um það í bili.
Athugasemdir
Þetta er fróðlegt, og ekki síst fyrir mann eins og mig, sem er alltaf að vinna við námuvinslu, og sem er mjög forvitinn um jarðfræði, þakka þér fyrir.
Hreinn Skagfjörð Gíslason, 15.2.2008 kl. 11:27
Ég hef alltaf haldið að jörðin væri hol að innan og þar byggi huldufólkið.
Sigurður Þór Guðjónsson, 16.2.2008 kl. 16:04
Já eins og við trúum öllu sem okkur er sagt, Ingibjörg? Þrátt fyrir að jarðgöng hafi verið boruð um allt land ber ekkert á þessari fljótandi járnblöndu eða kertavaxi.
Ólafur Þórðarson, 25.2.2008 kl. 20:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.