9.2.2008 | 21:47
Verður skipt um æðstu stjórnendur OR?
Í ljósi þeirra atburða sem orðið hafa undanfarið vaknar sú spurning hvort skipt verði um æðstu stjórnendur Orkuveitunnar, - þá sömu og voru farnir af stað með kaupréttarsamninga fyrir sjálfa sig í REI málinu. Er forsvaranleg stjórnsýsla að embættismenn búi til kaupréttarsamninga fyrir sjálfa sig þegar þeir sitja í stjórn fyrirtækis sem er í almannaeigu? Hvað segja stjórnsýslulögin í þessu sambandi?
Ég er ekki sátt við það að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson verði látinn gjalda einn fyrir allt sem úrskeiðis hefur farið í þessu máli. Spurningin vaknar hversu sterkt bakland stjórnendur Orkuveitunnar hafa. Geta þeir setið af sér storminn?
Hvor er það sem ræður, embættismaðurinn Humprey eða stjórnmálamaðurinn James Hacker? Var það Villi sem stjórnaði málinu?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.