22.1.2008 | 20:32
Borgarsápan heldur áfram
Nú tókst JR Villa að brjótast út af elliheimilinu fyrir útbrunna stjórnmálamenn þar sem fjölskyldan var búin að koma honum fyrir í veikri von um að hann yrði til friðs. Og ekki nóg með það, honum hefur tekist að koma höndum yfir fjölskylduauðinn á nýjan leik. Bobby Ewing er alveg í sjokki og Pamela hefur tekið upp ástarsamband við mafíuforingjann Tony Soprano til að fá vernd gegn Villa JR. Ásta Þorleifsdóttir er orðin aðstoðarborgarstjóri og mun stjórna fundum í borgarráði í fjarveru nýs borgarstjóra sem er á leiðinni á hressingarhæli á Hawaii. Þetta verður til þess að fundir borgarráðs verða bæði óvæntir og glaðlegir en lengjast einnig um nokkrar vikur hver fundur.
Aldrei hefur verið eins gaman í borgarstjórn. Aldrei jafn mikið pælt og spekúlerað. Aldrei jafn háfleygar umræður. Framsóknarmenn verða auðþekktir af því að þeir ganga um í lörfum af því að þeir fá ekki lengur fatapeninga og borgin riðar til falls eins og skipið Títanic eftir að það rakst á ísjakann. Meira að segja Hilmari í stjórnarráðinu er ekki skemmt þótt hann verði að standa með sínum mönnum, a.m.k. svona opinberlega.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.