Hver er Wislawa Szymborska ?

WislawaWislawa Szymborska fæddist 2 júlí árið 1923 í Póllandi.  Hún er ljóðskáld, rithöfundur og þýðandi.  Árið 1996 hlaut hún Nóbelsverðlaunin í bókmenntum.  Bækur hennar eru á metsölulistum út um allan heim jafnvel þótt að hún segi sjálf að einungis tveir af hverjum þúsund hafi innilega gaman af ljóðum.  Szymborska notar gjarnan kaldhæðni og andstæður til þess að benda á heimspekileg þemu og ástríður.  Kvæði hennar eru existentíalístísk og snerta siðferði auk stöðu einstaklingsins í samfélaginu. 

Szymborska hefur einungis samið um 250 ljóð en þykir samt eitt best ljóðskáld heims.  Hún er hlédræg að eðlisfari og hefur sig lítt í frammi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Kvitt og takk fyrir upplýsingarnar.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 5.3.2007 kl. 07:00

2 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Nafnið hennar hljómar svolítið eins og e-hvað sem Örn Árnason finnur upp til að nota í Spaugstofunni! :)  Virkar annars flott kona!

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 5.3.2007 kl. 08:22

3 Smámynd: Anna Benkovic Mikaelsdóttir

Anna Benkovic Mikaelsdóttir, 5.3.2007 kl. 23:33

4 Smámynd: Guðný Anna Arnþórsdóttir

Takk fyrir þessa ábendingu. Tékka örugglega á henni. Það heyrist allt of lítið af skáldkonum með dýpt, reynslu og árin á bak við sig. Æskudýrkunin er að fara með allt veg allrar veraldar.

Guðný Anna Arnþórsdóttir, 6.3.2007 kl. 22:28

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband