4.3.2007 | 08:02
Hvað get ég gert ?
Nú er ég búin að fjalla nokkuð um umhverfismál í bloggi mínu og sumir bloggvinir mínir eru orðnir dáldið svartsýnir. Ég ætla því aðeins að hressa þá við og benda á hluti sem hægt er að gera til þess að bjarga heiminum
Í fyrsta öðru og þriðja lagi skiptir máli að lifa vistvænu lífi. Hægt er að fara á námskeið Vistvernd í Verki og kynnast öðru fólki sem er að lifa vistvænu lífi sjá www.landvernd.is. Í öðru lagi er hægt að gerast félagi í umhverfis- eða náttúruverndarsamtökum og öðrum samtökum sem vinna að því að bæta veröldina. Það vantar alltaf sjálfboðaliða í slík samtök. Í þriðja lagi er að spara, spara og endurnýta allt sem hægt er. Ef maður lifir umhverfisvænt þá þarf maður ekki eins mikla peninga. Þar af leiðandi getur maður unnið minna og átt meiri tíma fyrir fjölskylduna og vinina. Í dag skortir flesta tíma en ekki peninga. Góðar stundir og munið að hugsa jákvætt!

Athugasemdir
Sæl Ingibjörg
Þú varst sú fyrsta sem ég sá skrifa um svifryk og hér fer á eftir pistill sem þú settir inn á Jónas, fyrir 6 árum!! Á þeim tíma sendi ég upplýsingar úr honum í fréttabréf leikskóla krakkanna minna sem stendur við gatnamót í suðurbæ Hafnarfjarðar. Þá voru engin viðbrögð og ég held að fólk hafi ekki haft áhuga á þessu á þeim tímapunkti. Ekki alveg vitað um hvað var verið að ræða. Þá vorum við hjónin í baráttu við foreldra að skilja ekki bílana í gangi utan við hliðið á leikskólanum og þurftum að hafa forgöngu fyrir því að leikskólastjórinn fengi skilti til að hengja utan á girðingu með útblástursbanni. Heyrði af því að á dögunum hafi norskir kennarar fengið nóg og staðið á planinu á morgnana og beðið fólk að drepa á bílunum sínum. Það vantar e.k. vakningu meðal fólks á þessum málum. Það sem hver og einn getur gert til að bæta ástandið. En hér í okkar samfélagi þar sem einstaklingurinn telur sig oft á tíðum standa utan við samfélagið virðist þetta ganga hægar en annars staðar. Er ekki til eitthvað sem heitir samfélagsvitund? Erum við íslendingar eitthvað óþroskaðri en aðrar þjóðir á þessum sviðum? Á þetta ekki líka við um endurvinnslu. T.d. samanborið við Þýskaland þar sem ég þekki aðeins til.
Kæri Jónas Svifryk eða aerosol hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarið vegnaNýsköpunarsjóðsverkefnis sem unnið var hjá Línuhönnun hf. Svifryk kemur frá bifreiðum, annars vegar vegna bruna og hins vegar vegnavegar- og dekkjaslits. Það hefur komið í ljós að um helmingur af öllu mældusvifryki í Reykjavík kemur frá bílum, annað er sjávarsalt eða moldrok. Svifryk sem hefur aerodýnamískt þvermál undir 10 µm fer niður í öndunarvegmanna. Svifryk sem er smærra en 2,5 µm sest á lungnablöðrurnar, leysist uppog fer inn í blóðið. Í svifrykinu eru þungmálmar, PAH efni, og fleiri efnisem valdið geta stökkbreytingum og hugsanlega krabbameini. Þeir sem eru helst í hættu vegna svifryks eru hjólreiðamenn og skokkarar semhjóla/hlaupa meðfram þungum umferðaræðum. Hjólreiðamaður og skokkari semreynir á sig, andar djúpt og tekur loftmengunina djúpt niður í lungun. Þessvegna er betra að hjóla/skokka í nokkurri fjarlægð frá veginum sé þess unnt.Göngustíga á í þessu sambandi að leggja í nokkurra metra fjarlægð frá götum.Börn, gamalt fólk og astmasjúklingar eru einnig sérstaklega viðkvæm gagnvartloftmengun og verður þessvegna að biðja menn um að slökkva á bílum nálægtsjúkrahúsum, leikskólum og elliheimilum. Og nú spyr auðvitað einhver hvort að ég eigi bíl ???? Svarið er já, ég ágamlan SAAB 900 sem er að detta í sundur og gefur frá sér torkennileg hljóðþegar ég stíg fast á bremsuna. Bílinn er stór eins og skriðdreki og notarheil býsn af 95 oktana bensíni. Skriðþungi farartækisins er gríðarlegur ogtaka Newtonískir kraftar við, þegar stjórn minni sleppir. Þetta er púraeðlisfræði - Massi marfaldaður með Hröðun gefur AFL. Með hóstandi rykföllnum kveðjum, Ingibjörg E. Björnsdóttir, M.Sc.Umhverfisráðgjafi /Environmental ConsultantLínuhönnun hf. VerkfræðistofaSuðurlandsbraut 4a108 ReykjavíkTel: 5851527Björnebanditt 176-167, 6.3.2007 kl. 10:31
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.