Hvað þarf marga Kárahnjúka ?

KárahnjúkarHvað ætli þurfi marga Kárahnjúka til þess að fella sitjandi ríkisstjórn ?  Gerir fólk sér almennt grein fyrir því að Reykjanes verður eitt stórt iðnaðarsvæði ef stóriðjustefnan fær að halda ótrauð áfram.  Reyknesingar munu aka í gegnum skóg af rafmagnslínum og virkjunum verði fyrirætlanir stjórnvalda að raunveruleika.  Íbúar í Árnes og Gnúpverjahreppi munu einnig búa á eyjum milli uppistöðulóna með skóg af rafmagnslínum í kringum sig.  Er þetta það sem Íslendingar raunverulega vilja ? 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valgeir Bjarnason

Myndin er virkilega ljót. Þetta er ekki glæsileg framtíðarsýn.

Valgeir Bjarnason, 3.3.2007 kl. 09:59

2 Smámynd: Steingerður Steinarsdóttir

Já, það er von þú spyrjir. Menn eru ótrúlega blindir og eins og þeir læri aldrei af reynslunni.

Steingerður Steinarsdóttir, 3.3.2007 kl. 12:02

3 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ætli sé ekki bara best að hengja sig!

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.3.2007 kl. 01:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband