Betra er seint en aldrei.

gamalt folkFlest eigum við eftir að eldast og breytast í þá manngerð sem gjarnan er kölluð eldri borgarar eða ellilífeyrisþegar.  Það að ná sjötugsaldri þýðir þó alls ekki að lífinu sé lokið.  Þvert á móti sýna allar rannsóknir að virkni í félagslífi og nám á efri fullorðinsárum lengir líf og bætir heilsu.  Þannig að það er aldrei of seint að byrja að læra eitthvað nýtt.  Af hverju ekki að byrja að læra frönsku um sjötugt,  mála, sauma, stunda listsköpun og gera allt það sem mann hefur alltaf langað til að gera.  Ef mér endist aldur og heilsa ætla ég að verða afskaplega virkt gamalmenni,  taka þátt í félagsstarfi, mála, skrifa ævisöguna og drekka eitt (og aðeins eitt) glas af rauðvíni á dag til þess að hreinsa æðakerfið.  Við skulum bera virðingu fyrir eldra fólki.  Það hefur reynslu lífsins að baki sér og almennt séð finnst mér fólk alltaf þroskast svo mikið og batna með aldrinum.  Við skulum bara hlakka til þess að eldast og njóta efri áranna þegar að þeim kemur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Sigurgeirsson

Kæra Ingibjörg

Ég óska þér góðrar heilsu í ellinni svo þú getir notið hennar vel. Ein leið til að halda heisu er að vera jákvæð. Þú getur séð það á mörgum sem verða af gamlir.

Jón Sigurgeirsson , 2.3.2007 kl. 17:55

2 Smámynd: Sigurður Þór Guðjónsson

Ég ætla að verða viðskotaillt og andstyggilegt gamalmenni! En helst vildi ég deyja ungur.

Sigurður Þór Guðjónsson, 4.3.2007 kl. 01:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband