31.5.2023 | 17:13
Vitranir Wesselmanns um líf mannkyns á jörðinni eftir 5000 ár
Mannfræðingurinn Hank Wesselmann hefur sagt frá shamanískum upplifunum sínum eða vitrunum þar sem hann tengir sig við afkomanda sinn sem lifir í Kaliforníu eftir 5000 ár í framtíðinni. Afkomandinn sem heitir Nainoa tilheyrir hópi fólks sem stundar veiðar og landbúnað og hefur siglt til meginlandsins Kaliforníu frá Hawaii eyjum. Samkvæmt bók Wesselmanns, Spiritwalker sem fæst á Amazon, verður frumskógur í Kaliforníu eftir 5000 ár. Innhaf verður þar mikið vegna þess að sjávarstaða hefur hækkað umtalsvert og meðalhiti í Kaliforníu hefur hækkað samkvæmt þessu um 20 gráður á Celsíus vegna loftslagsbreytinga og hlýnunar jarðar. Nainoa leitar að hlutum í rústunum af San Francisco. Hann hefur enga hugmynd um hvað bílar eru, en leifar af vegum standa ennþá en enginn veit til hvers vegirnir voru notaðir. +
Nainola lifir í mæðraveldis ættbálkasamfélagi þar sem konur fara með æðstu völd. Hann tekst á við þá áskorun að fara einn í landkönnunarleiðangur inn í land, yfir fjöllin og yfir á slétturnar hinum meginn. Þar eru savannasléttur með fílum, gíröffum og ljónum eins og eru núna í Afríku. Markmið Nainoa er að finna hesta og reyna að koma með slík dýr heim til síns ættbálks.
Nainoa hittir handan við fjöllinn veiðmenn, safnara og hirðingja sem lifa á dýrunum á sléttunni og safna jurtum og berjum.
Ef þessi mynd Hank Wesselmanns er rétt, þá eru það bæði slæmar og góðar fréttir. Góðu fréttirnar eru að mannkynið verður ennþá til eftir 5000 ár, þótt hópar þess verði ekki fjölmennir en vondu fréttirnar eru að borgir eins og San Francisco, San Diego, Los Angeles, New York og London verða allar hamfarakenndum loftslagsbreytingum að bráð þannig að eftir 5000 ár verða allar þessar borgir rústir einar, vaxnar regnskógi. Vestræn siðmenning verður löngu hrunin.
Hækki meðalhiti jarðar um 20 gráður en ekki 2 eins og stefnt er að í samningum, er ljóst að við erum að sigla inn í miklu meiri loftslagsbreytingar en nokkurn vísindamann grunar. Við erum að fara inn í hamfarahlýnun á fullri ferð sem mun hafa hryllilegar afleiðingar í för með sér. Mannkynið hefur sjálft valdið loftslagsbreytingunum með líferni sínu og ákvörðunum síns frjálsa vilja. Wesselmann spáir í raun endalokum heims eins og við þekkjum hann.
Eitt sinn voru sett fram boðorðin 10. Þar stóð: Þú skalt ekki morð fremja. Þú skalt ekki ágirnast það sem náungi þinn á. Heiðra skaltu föður þinn og móður. Mannkynið hefur brotið öll þessi boðorð Guðs aftur og aftur. Einnig með því að ráðast gegn náttúrunni sjálfri og lögmálum hennar hefur mannkynið gert uppreisn gegn Guði sjálfum.
Hank Wesselman hefur skrifað fleiri bækur eins og Visionseeker þar sem hann lýsir ferðum sínum inn í framtíðina og samskiptum sínum við afkomanda sinn í Kaliforníu. Mæli með þessum bókum fyrir þá sem hafa á slíkum málum áhuga.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir M.Sc.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)