5.4.2023 | 09:10
Erkiengillinn Rafael - Engill Læknisfræðinnar
Erkiengillinn Rafael er Engill læknisfræðinnar. Hann er með stafinn með snáknum sem oft er settur á sjúkrabíla og litur hans er smaragðsgrænn - fagurgrænn læknandi litur.
Rafael er einnig Engill lækningamátts kærleikans og hinn sanni kærleikur streymir frá honum eins og læknandi ljós.
Læknar geta beðið Rafael um að hjálpa sér og sjúklingar geta það líka. Allir sem finna fyrir einhvers konar heilsuleysi geta leitað til Rafaels.
Þegar maður leitar til engla og biður þá um hjálp er hægt að biðja Krist um að senda þá til sín. Allir góðir englar eru jú englar Krists.
Engla á ekki að tilbiðja. Við tilbiðjum Guð og við sendum bænir til Krists, en við getum beðið Krist um að senda okkur engil sinn Rafael.
Kristur sjálfur er mesti læknirinn, að sjálfsögðu, en þar sem hann er nokkurs konar framkvæmdastjóri Guðs, er hann yfirleitt nokkuð önnum kafinn.
Öll erum við einnig með okkar eigin Verndarengil og flest erum við einnig með Aðalleiðbeinanda eða prófessor í Jarðarskólanum sem er einnig engill.
Ég er svo heppin að vera miðill og tengjast englasviðinu þannig að stundum fæ ég að sjá Engla, þessar dásamlegu verur í huga mér. Ég sé þær aldrei með augunum, en fæ upp myndir í hugann.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)