27.3.2023 | 12:48
Hvað er skynsegni?
Skynsegni er að vera með öðruvísi heila en gengur og gerist. Heilinn getur þá t.d. verið einhverfur, eða ADHD eða eitthvað annað.
Skynsegið fólk upplifir og skynjar veröldina öðruvísi en þau 66% sem eru normal. Heyrn getur verið frábrugðin, samhæfing getur verið öðruvísi og skynsegið fólk hreyfir sig öðruvísi í gegnum þrívítt rými.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2023 | 08:19
Einhverfa er skipulag heilans en ekki sjúkdómur
Oft er það sem fólk heldur að einhverfa og ADHD séu einhvers konar geðsjúkdómar. Einhverfa og ADHD eru hins vegar heilkenni en ekki sjúkdómar. Einhverfi heilinn er frábrugðinn hinum normala heila sem 66% fólks eru með. Hann er hreinlega öðruvísi upp byggður og það sést í heilaskanni. ADHD er einnig heilkenni og ekki sjúkdómur.
Tíðni geðsjúkdóma hjá einhverfum er almennt ekki meiri en hjá venjulegu normal fólki. Hins vegar eru flestir einhverfir undir miklu álagi í samfélögum nútímans, þar sem hinn einhverfi er að reyna að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til fólks almennt.
Að vera einhverfur er eins og að vera útvarpsstöð sem er aðeins rangt stillt, þannig að það er alltaf eitthvað suð, skruðningar og læti. Normal fólk sem er 66% allra halda alltaf að það þurfi bara aðeins að stilla okkur, þannig að við verðum normal, en takkinn til að stilla einhverfuna er ekki til og það er allra best ef við fáum bara að vera einhverf í friði.
Ég er einhverf / ADHD en ég er ein af þeim fáu einhverfu sem er líka með geðsjúkdóm. Það er bara eitthvað sem var í genamengi mínu í upphafi en ekkert sem kemur beint einhverfunni við.
Þannig að næst þegar þið hittið einhverfa manneskju, þá er hún ekki veik, heldur einungis með öðruvísi heila.
Temple Grandin hefur sagt að mannkynið þurfi á öllum tegundum heilabúa að halda og það er satt. Við þurfum einhverfa hugsun, einhverfa einbeitingu og einhverft ímyndunarafl til að leysa þann vanda sem blasir við mannkyninu. Albert Einstein og Janus von Neuman voru líklega einhverfir. Thomas Alfa Edison líklega líka. Án þeirra ættum við hvorki tölvur né rafmagn.
Virðum mennskan fjölbreytileika og leyfum skynsegin einhverfu fólki að vera eins og það er.
Ingibjörg Álfrós Björnsdóttir
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2023 | 07:54
Að verða eitthvað þegar maður er orðinn stór
Ég mun aldrei verða neitt þegar ég er orðin stór. Ástæðan er sú að þegar ég var 19 ára fékk ég alvarlegan geðsjúkdóm sem hefur fylgt mér alla ævi. Og þó ég geti lært og hafi lokið nokkrum háskólaprófum, þá get ég ekki unnið og ekki unnið úr öllu því sem ég hef lært. Þetta er sorglegt en svona er bara staðan.
Sjúkdómurinn er ekkert að batna og ég var inni á Landsspítalanum bara núna fyrir nokkrum vikum. Starfsfólkið þar var yndislegt. Sú dvöl gerði það að verkum að ég er ekki lengur hrædd við geðdeildir. Þær eru góðir staðir og þar er fullt af góðu fólki sem skilur hvað maður er að takast á við.
Skilningurinn úti í samfélaginu er hins vegar minni. Fordómar gegn geðsjúkdómum eru ennþá algengir sem verður til þess að ég loka mig mikið af innandyra og fer ekki mikið út fyrir dyr. Það eru þó alltaf einhverjir sem koma í heimsókn og detta inn í kaffi.
Ég fæ liðveislu frá Sveitarfélaginu einu sinni í viku. Þá kemur manneskja sem fer með mér í göngutúr og við drekkum saman kaffi. Hún fær borgað fyrir að vera vinkona mín, en ég þarf virkilega á því að halda.
Ég lærði almenna jarðfræði en get ekki kennt. Ég lærði umhverfisefnafræði en get ekki unnið. Ég sjálf myndi vilja vinna ef ég gæti, en sjúkdómurinn kemur í veg fyrir það. Ég er með ótilgreindan geðrofssjúkdóm, sem þýðir að ég get farið í geðrof og upplifað fullt af hlutum sem ekki eru raunveruleiki.
Ég er samt algjör reglumanneskja. Drekk ekki. Reyki ekki. Þetta kemur bara úr genunum. Ég gerði ekkert til að framkalla þetta. Þessi staða er ekki mér að kenna.
Það er sárt að geta ekki lagt meira af mörkum til samfélagsins. Ég var reyndar sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum í 17 ár en treysti mér ekki lengur til þess. Ég má ekki vera undir neinu álagi.
En svona gerist. Mér líður allavegana vel í dag.
Góðar stundir!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)