Bakhtínskur Shakespeare - hið raunverulega karnival

malvolio-yellow Halaleikhópurinn, leikhópur fatlaðra og ófatlaðra sýnir um þessar mundir Shakespeare-karnival í Sjálfsbjargarhúsinu, Hátúni 12. Ég var svo lánsöm að sjá þessa frábæru sýningu í gær.

Í bókmenntum er oft talað um karnivalið sem er eins konar uppreisn gegn hefðum og yfirvaldi, þegar þeir sem minnst mega sín í þjóðfélaginu taka völdin.  Skemmst er frá því að segja að sýning Halaleikhópsins er alvöru karnival, þar sem valdahlutföllinn í samfélaginu snúast við og hinn bakhtínski hlátur tekur völdin.

Enda var mikið hlegið á sýningunni. Næstum því ómögulegt er að taka einhverja leikara út úr þessum frábæra hópi og hrósa sérstaklega. Ég verð þó að nefna þrjá leikara sem virkilega sýndu frábæra takta: Sólveig Björk Axelsdóttir fór stórkostlega vel með erfitt hlutverk, Gunnar Gunnarsson var óborganlegur sem Malvólíó og Gunnar Freyr Árnason lék hinn drukkna Tóbías svo vel að sumir sýningargesta héldu að hann væri raunverulega í því. Hið öskrandi ljón kom einnig öllum til að hlæja.

Ég leyfi mér að segja að Shakespeare sýning Halaleikhópsins hafi verið nær hinum raunverulega bakhtínska hlátri og karnivali Shakespeares, heldur en margar sýningar annarra leikhópa sem taka sig alltof alvarlega.  Svona hefur Shakespeare verið í raun og veru hugsaði ég hrærð þegar ég gekk út í lok sýningarinnar.

Takk fyrir mig. Þið eruð öll gjörsamlega frábær.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ása Hildur Guðjónsdóttir

Takk fyrir þetta

kveðja frá Halaleikhópnum

Ása Hildur Guðjónsdóttir, 2.3.2009 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband