Ljóð til lítillar stúlku

Ég hnýti þér kransangel_cemetery_mauer_1259699.jpg
úr sólstöfum
úr tindrandi silfri.

Gef þér enda
regnbogans
í örlitlu
perlulögðu
skríni.

Í skríninu búa
englar Guðs
og stjörnur
himinsins.

Sem vaka
yfir þér
allar þínar
stundir.

IEB (2015)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband